Hlutverk félagsins er að þjónusta félagsmenn sína, vera öflugur bakhjarl dótturfélaganna og vera til fyrirmyndar í samfélagslegri ábyrgð. Framtíðarsýn félagsins er að vera öflugt og traust félag sem tekur virkan þátt í að bæta samfélagið og skarar fram úr. Með félagsaðild að samvinnufélagi erum við eigendur í félagi sem grundvallast á lýðræði, einn maður eitt atkvæði. Við trúum því að saman byggjum við betra samfélag.
KSK á í dag 51% eignarhlut í Samkaup hf., sem rekur yfir 60 verslanir á dagvörumarkaði um allt land. Einnig á félagið 100% eignarhlut í KSK eignum ehf., fasteignafélagi sem á 30 fasteignir víða um land.
Stjórn KSK
Sigurbjörn Gunnarsson
- Formaður stjórnar
Eysteinn Eyjólfsson
- Varaformaður stjórnar
Guðbjörg Ingimundardóttir
- Ritari stjórnar
Inga Brynja Magnúsdóttir
- Meðstjórnandi
Garðar Newman
- Meðstjórnandi
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir
- Varamaður
Andri Freyr Stefánsson
- Varamaður
Jóngeir Hjörvar Hlinason
- Varamaður