Skráðu þig hér

Allir sem eru 18 ára og eldri geta sótt um félagsaðild sem kostar 1.000 krónur og greiðist gjaldið einungis einu sinni.

Kynntu þér skilmála félagsaðildar hér fyrir neðan.

Eina sem þú þarft að gera er að fylla út formið hér til hliðar.

Skilmálar

Allir sem eru orðnir 18 ára og búa á félagssvæði KSK geta orðið félagar. Félagssvæðið er Suðurnes.

Félagsgjald er kr. 1.000,- sem varðveitt er í stofnsjóði félagsins á þínu nafni. Stofnsjóður er séreignarsjóður.

Við inngöngu skuldbindum við okkur lögum félagsins, eins og þau eru eða verða á hverjum tíma.

Félagið er samvinnufélag samkvæmt landslögum.

Félagsmenn bera ekki persónulega ábyrgð á skuldbindingum þess, fram yfir það sem nemur stofnsjóðsinneign hvers um sig.

Sérhver félagsmaður hefur eitt atkvæði og er kjörgengur í trúnaðarstöður samkvæmt samþykktum félagsins.