Hlutverk félagsins er að vera öflugt samvinnufélag á Suðurnesjum sem vill stuðla að bættum hag félagsmanna og styrkja búsetu og mannlíf á félagssvæðinu. Horft til framtíðar vill KSK vera traust og sýnilegt félag sem er öflugur þátttakandi í atvinnulífi á félagssvæðinu og styður við samfélagið. Með félagsaðild að samvinnufélagi erum við eigendur í félagi sem grundvallast á lýðræði, einn maður eitt atkvæði. Við trúum því að saman byggjum við betra samfélag.
KSK á 100% eignarhlut í KSK eignum ehf., fasteignafélagi sem á um 32 fasteignir víða um land, samtals um 35.000 fermetra. Jafnframt á KSK um 15% eignarhlut í Dröngum hf. sem á og rekur Samkaup, Orkuna, Lyfjaval, Löður og fleiri fyrirtæki.
Stjórn KSK
Sigurbjörn Gunnarsson
- Formaður stjórnar
Eysteinn Eyjólfsson
- Varaformaður stjórnar
Inga Brynja Magnúsdóttir
- Ritari stjórnar
Garðar Newman
- Meðstjórnandi
Anna Birgitta Geirfinnsdóttir
- Meðstjórnandi
Andri Freyr Stefánsson
- Varamaður
Jóngeir Hjörvar Hlinason
- Varamaður
Halldóra G. Jónsdóttir
- Varamaður
