Aðalfundur KSK haldinn 19. mars 2026

Aðalfundur KSK haldinn 19. mars 2026

Aðalfundur KSK var haldinn hinn 19. mars sl. Á  fundinum fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf. Í skýrslu stjórnar kom fram að hagnaður félagsins á árinu 2025 nam 1,1 milljarði króna. Kemur það einkum til af söluhagnaði hlutabréfa í Samkaupum en þau voru seld til Dranga hf. Kaupfélagið er í framhaldi næst stærsti hluthafinn í Dröngum. Þá gekk rekstur dótturfélagsins KSK eigna ehf. mjög vel og skilaði 84 m.kr. hagnaði eftir skatta. Guðbjörg Ingimundardóttir gaf ekki kost á sér til setu í stjórn en hún hefur setið í stjórninni frá árinu 1989 eða í 37 ár. Voru henni þökkuð mikil og góð störf í þágu félagsins. Í hennar stað var kjörin Halldóra G. Jónsdóttir.

decoration