Okkar ágóði er þinn ágóði
Þegar þú ákveður að gerast félagi í KSK verður þú félagslegur eigandi. Hlutdeild ágóðans skilar sér til þín og uppbyggingar í samfélagi okkar.
Sem félagsmaður ertu eigandi. Þú greiðir 1.000.- krónur í félagsgjald sem varðveitist á þínu nafni í stofnsjóði félagsins.
Áhrif og virkni fyrir framtíðina
Langar þig að hafa áhrif?
Viltu taka þátt í að móta framtíð félagsins ? Viljir þú koma á framfæri ábendingum eða skilaboðum þá sendu okkur línu á [email protected]
Stuðningur við samfélagið
Það er stefna félagsins að hluti ágóða KSK og dótturfélaga fari markvisst til baka í samfélagið okkar.
Betri kjör fyrir félagsmenn
Þegar þú framvísar Samkaupa appinu í verslunum Samkaupa færðu 2% inneign, regluleg tilboð, kvittanir í símann.
Þú færð einnig fjölda góðra tilboða, sérauglýst fyrir félagsmenn.
